13. nóvember 2026
Truflanir á tölvupóstþjónustu Garra
*uppfært 14:38, 16. nóvember*
Tölvupóstþjónusta komin í lag
Truflanir á tölvupóstþjónustu Garra vegna bilunar í kerfum Microsoft hafa verið leystar og þjónustan er komin í eðlilegt horf, allir eldri póstar ættu að sendast út á næstu klukkutímum.
Tölvupóstar sem ekki skiluðu sér á meðan bilunin stóð yfir munu nú berast viðskiptavinum. Því gætu einhverjir fengið fleiri en einn tölvupóst í einu, þar á meðal staðfestingar á pöntunum sem voru gerðar á meðan truflanirnar stóðu yfir.
Við bendum viðskiptavinum á að athuga dagsetningar í pöntunarstaðfestingum, þar sem þær kunna að tengjast eldri pöntunum en ekki nýjum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem truflanirnar kunna að hafa valdið og þökkum fyrir sýndan skilning.
