Garri gætir fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Allt starfsfólk skal fá greidd jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir jafn verðmæt störf.
Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Garri sig til þess að innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur Janflaunastaðals ÍST 85:2012. Garri byggir allar launaákvarðanir á málefnalegum viðmiðum til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.
Til þess að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Garri sig til að:
Vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur Jafnlaunastaðals ÍST 85:2012
Reykjavík 5. apríl 2022