9. nóvember 2026

Sigurvegarar í Eftirréttur ársins og Konfektmola ársins 2026

Eftirréttur ársins Konfektmoli ársins 2026

Keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fóru fram á vegum Garra á Stóreldhússýningunni í Laugardalshöll fimmtudaginn 5. nóvember.

Keppnirnar hafa verið mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk í bakstri, konditori og matreiðslu til að sýna hæfni sína, sköpunarkraft og metnað. Garri hefur lengi lagt áherslu á að styðja við fagið með því að skapa tækifæri til þróunar og nýsköpunar innan íslensks veitinga- og sætabrauðsgeira.

Dómarar ársins 2026 voru þau Hrefna Sætran, yfirdómari í Eftirrétti ársins, Axel Þorsteinsson, Andrés Björgvinsson, Vigdís Mi Diem Vo og Sigurður Laufdal. Dómnefndin lagði mat á meðal annars bragð, framsetningu, tæknilega útfærslu og frumleika.

Sigurvegarar í Eftirrétti ársins 2026

1. verðlaun

Þorlákur Sigurðsson, Flóra veitingar

Dökk súkkulaðimús á möndlupralíni fyllt með créme patissiére. Eplamús og eplacompoté í skel með svissneskum maregns. Poached epli, eplaís og eplasalat. Choux puff með eplafyllingu. Möndluganache og heit karamella. Temprað súkkulaði.

2. verðlaun

Tómas Leo Kristjánsson, nýsveinn (MK), Matarkjallaranum

“Mille fuille” ásamt súkkulaðikremi, “paris brest” með möndlu pralín, bæverskur búðingur með ferskjum og apríkósu ís.

3. verðlaun

Natasja Keincke, monitor meistari, Bakarameistaranum

„Ég reyndi að halda mig sem mest við þemað [París 1920] á sama tíma og ég bætti við örlitlum glæsileika og nútímalegu ívafi. En umfram allt snerist þetta um að hafa gaman af verkefninu og njóta sköpunarferlisins.“

Nemaverðlaun Garra

Aron Elvar Bjarkason, matreiðslunemi, Hótel Geysi

Croissant fyllt með heslihnetupralíné og súkkulaðikremi, borið fram með grænu eplamousse og eplagljáa. Til hliðar er appelsínusorbet, apríkósu pâte de fruit, sítrónutímían-pocheruð pera, dökkt súkkulaðiganache, fíkjugel og stökkur súkkulaðimulningur.

Þorlákur Sigurðsson, fyrstu verðlaun
Tómas Leo, 2 sæti
3. verðlaun Natasja Keincke
Aron Elvar Nemaverðlaun
Íris Nhi 1 verðlaun konfekt
Emilie

Sigurvegarar í Konfektmola ársins 2026

1. verðlaun

Íris Nhi Einardóttir, bakari og kökudeildarstjóri hjá IKEA

Pomme Verte sameinar dökkt súkkulaði frá Cacao Barry (Mi-Amère 58%), græneplahlaup úr Granny Smith-eplapúrru frá Capfruit, silkimjúkt ganache-krem með Calvados og stökkt feuilletine-lag. Framsetningin er innblásin af glæsileika Art Deco-stílsins í París á þriðja áratug 20. aldar.

2. verðlaun og Nemaverðlaun Garra

Emilie Frederiksen, konditornemi hjá Bakarameistaranum

Með samspili appelsínu, neguls, apríkósu og karamellu möndlum vildi ég kalla fram stemningu sem minnir á parískt sætabrauðshús, með vísun í þann lúxus, hlýju og krydduðu tóna sem einkenndu franska sætabrauðslist á þessum tíma.

3. verðlaun

Guðrún Erla Guðjónsdóttir, bakari og konditor hjá Mosfellsbakaríi

Súkkulaði skel úr Cacao Barry Mi-Amére 58%, apríkósu paté de fruit, súkkulaði ganach og heslihnetu pralín botn kryddað með tonka.

_

Garri óskar öllum verðlaunahöfum og þátttakendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar jafnframt dómurum, samstarfsaðilum og gestum fyrir þátttökuna í vel heppnuðum degi.

15
Sigurvegarar 2026
Þorlákur
íris nhi