Mannauðstefna

Mannauðurinn er dýrmætasta auðlind Garra. Virðing, vöxtur og vellíðan eru einkunnarorð okkar í mannauðsmálum, ásamt gildum Garra.

mannauðsgildi minni kulur

Virðing

Virðing felur í sér heiðarleg og uppbyggileg samskipti, eflandi endurgjöf og góða upplýsingamiðlun.

Einnig vísar virðing í gagnkvæmt traust, jafnrétti, fjölbreytileika, jöfn tækifæri og fagmennsku við ráðningar og starfslok.

Virðing felur í sér:

• Jafnréttisáætlun
• Jafnlaunastefna
• Stefna og viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni
• Upplýsinga- og samskiptastefna
• Góð upplýsingamiðlun
• Starfsmannasamtöl
• Ráðningar- og starfslokaferlar
• Viðhorfs- og starfsánægjukannanir meðal starfsmanna

Myndir fyrir vefsíðu - upplýsingasíður (6)
Myndir fyrir vefsíðu - upplýsingasíður (1)

Vöxtur

Vöxtur felur í sér frumkvæði og metnað í starfi, markvissa fræðslu og tækifæri til faglegs og persónulegs vaxtar.

Boðið er upp á leiðtogaþjálfun með áherslu á hvetjandi leiðtogamenningu.

Markmið Garra er að efla hæfni og öryggi allra starfsmanna við verkefni sín og skapa þeim og Garra ný tækifæri.

Vöxtur felur í sér:

• Kortlagning nauðsynlegrar og æskilegrar fræðslu og þekkingar fyrir öll störf
• Árleg fræðsluáætlun fyrir öll störf
• Regluleg endurskoðun starfslýsinga
• Einstaklingsmiðaðar starfsþróunaráætlanir
• Laus störf auglýst bæði innanhúss og utanhúss

Vellíðan

Vellíðan felur í sér ástríðu fyrir verkefnunum, öfluga teymisvinnu, skemmtilega og hlýlega vinnustaðamenningu og heilbrigt og skapandi starfsumhverfi.

Vellíðan felur í sér:

• Móttaka nýliða og nýliðafræðsla
• Góð og örugg vinnuaðstaða
• Skemmtilegar uppákomur og viðburðir á vegum Garra eða starfsmannafélags
• Hvatning til heilbrigðra lífshátta (hreyfing, næring, hvíld) t.d. með hollum mat á vinnutíma, líkamsræktarstyrk
og hæfilegu vinnuálagi
• Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Myndir fyrir vefsíðu - upplýsingasíður