Laus störf

Starfsfólk Garra hefur gildi fyrirtækisins, heiðarleika, áreiðanleika og ástríðu að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Gildin endurspegla grundvallarviðhorf og hugmyndir sem liggja að baki fyrirtækjamenningu Garra.

Myndir fyrir vefsíðu - upplýsingasíður (5)

Mannauðurinn er dýrmætasta auðlind Garra

Mannauðurinn er dýrmætasta auðlind Garra. Virðing, vöxtur og vellíðan eru einkunnarorð okkar í mannauðsmálum, ásamt gildum Garra.

Hjá Garra ríkir sterk liðsheild, hlýleg vinnustaðamenning og skapandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og njóta sín í starfi.

Við bjóðum upp á framúrskarandi starfsaðstöðu, styrki til endurmenntunar og hvetjum til heilbrigðs lífsstíls. Jafnrétti, öryggi og vellíðan starfsfólks eru í fyrirrúmi og við leggjum áherslu á að vera fjölskylduvænn og eftirsóknarverður vinnustaður.

mannauðsgildi minni kulur

Hefur þú áhuga á að starfa á skemmtilegum vinnustað með framúrskarandi starfsaðstöðu?

Við leggjum mikla áherslu á að byggja upp vinnustað þar sem traust, samvinna, fagmennska og vellíðan starfsfólks eru í fyrirrúmi. Við teljum að ánægt og metnaðarfullt starfsfólk sé lykillinn að farsælli þjónustu og árangri til framtíðar.

Öryggis- og umhverfismál

Árið 2026 hlaut Garri einnig BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, hæstu mögulegu einkunn í tilkynndri úttekt. Vottunin staðfestir öfluga gæðastjórnun, matvælaöryggi og rekjanleika í allri starfsemi fyrirtækisins.

Umhverfisvitund er rauður þráður í rekstri Garra og leggjum við áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar með stöðugum umbótum og ábyrgum starfsháttum. Við viljum vera fyrirmynd í sjálfbærni og taka virkan þátt í að skapa betri framtíð fyrir samfélag og umhverfi.

Fyrirtæki ársins 2026

Garri var valið Fyrirtæki ársins 2026 í könnun VR, einni umfangsmestu vinnustaðakönnun landsins. Viðurkenningin byggir á mati starfsfólks á fjölmörgum þáttum starfsumhverfisins og er heildareinkunn reiknuð út frá viðhorfi þess til meðal annars stjórnunar, starfsanda, launakjara, vinnuskilyrða, jafnréttis, starfsánægju, sveigjanleika og tækifæra til starfsþróunar.

Við erum afar stolt af þessum árangri og lítum á hann sem hvatningu til að halda áfram að þróa fyrirtækið, styrkja starfsumhverfið og vera vinnustaður þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa, njóta sín og ná árangri.