Viðskiptaskilmálar
Almennir viðskiptaskilmálar Garra ehf.
Garri ehf. – kt. 6708922129 – Hádegismóum 1 – 110 Reykjavík – Vsk nr. 103750
Gildissvið
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti Garra ehf. (hér eftir „Garri“) með vöru og þjónustu, hvort sem pantað er í vefverslun, í gegnum sölumann, með tölvupósti eða í síma. Skilmálar þessir gilda frá 27. október 2026.
Garri áskilur sér einhliða rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara með birtingu á vefsíðu og/eða með tilkynningu til kaupenda. Gildir breytingin þá um öll þau viðskipti sem stofnað er til eftir birtingu.
Aðgangur og heimildir
Aðgangur að vefverslun er stofnaður af aðila sem hefur heimild til að skuldbinda kaupanda, þ.e. prókúruhafa eða öðrum með sambærilegt umboð. Með stofnun aðgangs að vefverslun samþykkir sá aðili skilmála þessa fyrir hönd kaupanda.
Sá aðili veitir öðrum starfsmönnum kaupanda aðgang að vefverslun og ber ábyrgð á að kynna skilmála þessa fyrir þeim sem leyfi hafa til að eiga viðskipti fyrir hönd kaupanda.
Kaupandi ber ábyrgð á að halda aðgöngum réttum á Mínu svæði.
Kaupandi ber ábyrgð á öllum pöntunum sem gerðar eru með aðgangi hans eða starfsmanna hans í vefverslun og eftir öðrum pöntunarleiðum þar til lokað hefur verið fyrir aðganginn á Mínu svæði eða Garra hefur verið tilkynnt um afturköllun heimildar.
Óheimilt er að veita rangar eða villandi upplýsingar eða misnota vefverslun með öðrum sviksamlegum hætti. Garri áskilur sér rétt til að takmarka eða loka aðgangi ef grunur vaknar um brot gegn skilmálum þessum eða aðra sviksamlega háttsemi.
Allar upplýsingar, gögn og annað efni sem birtist á vefsíðu Garra, þar með talið nöfn, vörumerki, verðupplýsingar og uppsetning, njóta verndar samkvæmt lögum um höfundarrétt, vörumerki og önnur hugverkaréttindi.
Óheimilt er að afrita eða endurbirta upplýsingar og gögn sem birtast í vefverslun eða nýta þau með öðrum hætti án fyrirfram fengins samþykkis Garra. Óheimil notkun telst brot gegn skilmálum þessum.
Pantanir
Samningur kemst á þegar Garri hefur staðfest pöntun, rafrænt eða með öðrum hætti.
Garri getur hafnað pöntun, í heild eða að hluta, ef:
a) vara er uppseld eða ófáanleg
b) rökstuddur grunur er um villu í pöntun eða verðskráningu
c) rökstuddur grunur er um misnotkun aðgangs
d) vara hefur verið innkölluð
e) kaupandi er í vanskilum eða pöntun fer umfram úttektarheimild hans.
Ef ekki reynist unnt að afgreiða pöntun að fullu skal Garri tilkynna kaupanda um það. Kaupanda ber einungis að greiða fyrir þær vörur sem afhentar eru.
Verð
Verð miðast við verðlista Garra á pöntunardegi. Öll verð eru án virðisaukaskatts og eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Augljós villa í verði er ekki bindandi fyrir Garra.
Kaupandi skuldbindur sig til að greiða fyrir pantaðar vörur samkvæmt verðlista Garra eins og hann birtist í vefverslun og kemur fram á pöntunarstaðfestingu að teknu tilliti til þeirra afsláttarkjara sem gilda um viðskipti aðila.
Garri mun leitast við að halda verði stöðugu eftir því sem kostur er.
Garri áskilur sér rétt til að breyta söluverði til samræmis við breytingar á kostnaðarverði vara og mun leitast við að lækka verð þegar forsendur eru til þess.
Hluti af vörum Garra er afgreiddur og reikningsfærður eftir vigt. Garri leitast við að afgreiða vörur eins nálægt þeirri þyngd sem kaupandi pantar. Endanlegur reikningur byggist ávallt á endanlegri þyngd vigtarvöru við afgreiðslu.
Reikningar
Reikningar eru sendir rafrænt.
Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast Garra skriflega innan 10 daga frá útgáfudegi. Berist ekki athugasemd innan frestsins telst reikningur samþykktur.
Verði ágreiningur um reikning er kaupanda aðeins heimilt að halda eftir þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Reikningar, pantanir og hreyfingalistar kaupanda eru aðgengilegir á Mínu svæði í vefverslun.
Greiðslur
Gjalddagi reikninga fer eftir greiðsluskilmálum sem samið hefur verið um milli Garra og kaupanda. Hafi ekki verið samið um annað er gjalddagi útgáfudagur reiknings.
Sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga reiknast dráttarvextir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá gjalddaga til greiðsludags.
Vanskil
Sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga er Garra heimilt að stöðva afhendingar þar til gjaldfallin skuld hefur verið greidd.
Afhending og áhættuskipti
Garri afhendir vörur á afhendingarstað kaupanda eða kaupandi sækir þær í vöruhús.
Áhættuskipti fara fram þegar vörur fara úr vöruhúsi Garra.
Afhendingartímar eru áætlaðir.
Kaupandi skal tryggja aðgengi að afhendingarstað á afhendingartíma.
Gallar og vöruskil
Vöntun, ranga afgreiðslu, sýnilega galla eða skemmdir, sem og óskir um vöruskil, skal tilkynna Garra innan 48 klst. frá afhendingu.
Kaupandi ber kostnað af endursendingu nema skil stafi af galla eða mistökum Garra.
Óheimilt er að senda skilavöru í aðkeyptum flutningi án samþykkis Garra.
Ábyrgð og ófyrirséðar aðstæður
(force majeure)
Garri ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til ófyrirséðra aðstæðna sem eru utan eðlilegrar stjórnunar hans og ekki verður með sanngirni ætlast til að hann hafi getað séð fyrir, komið í veg fyrir eða ráðið bót á (force majeure). Til slíkra atvika teljast meðal annars náttúruhamfarir, óveður, farsóttir, verkföll, viðskiptahömlur,
stríðsátök, hryðjuverk og verulegar truflanir á samgöngum eða fjarskiptum. Í slíkum tilvikum skapast ekki skaðabótaskylda gagnvart kaupanda.
Garri ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð gagnvart kaupanda á óbeinu eða afleiddu tjóni kaupanda eða þriðja aðila, svo sem hagnaðarmissi, rekstrartjóni, tapi á áætluðum sparnaði eða skerðingu á viðskiptavild.
Komi til gjaldþrots, rekstrarstöðvunar, greiðslustöðvunar eða ef hafnar eru nauðasamningsumleitanir hjá kaupanda er Garra heimilt að hætta að þjónusta hann og gera honum þá þegar reikning fyrir öllum óreikningsfærðum vöruúttektum.
Framsal
Kaupanda er óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur gagnvart Garra án skriflegs samþykkis Garra.
Trúnaður og þagnarskylda
Aðilar skuldbinda sig til að gæta trúnaðar um viðskiptakjör, verðupplýsingar og aðrar óopinberar upplýsingar sem þeim berast í tengslum við viðskipti sín á milli. Trúnaðarskylda helst óbreytt eftir lok viðskiptasambands aðila.
Við lok viðskiptasambands skal hvor aðili, að beiðni gagnaðila, skila eða eyða trúnaðarupplýsingum sem hann hefur fengið frá gagnaðila, ásamt afritum þeirra, nema lög eða aðrar bindandi skyldur kveði á um varðveislu.
Persónuvernd
Garri vinnur persónuupplýsingar um tengiliði kaupanda í tengslum við viðskipti aðila. Öll vinnsla fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Garra, sem er aðgengileg á garri.is.
Lög, varnarþing og önnur ákvæði
Íslensk lög gilda um skilmála þessa og viðskipti aðila, þar með talið tilboð og samninga sem Garri gerir við viðskiptavini sína. Rísi ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi. Náist ekki samkomulag skal reka ágreiningsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tilkynningar sem sendar eru á skráð netfang kaupanda hjá Garra teljast fullnægjandi, nema lög mæli fyrir um annað. Kaupanda ber að tilkynna Garra án ástæðulauss dráttar um breytingar á netfangi, heimilisfangi eða öðrum skráðum samskiptaupplýsingum.
Hægt er að koma á framfæri ábendingum með tölvupósti á garri@garri.is eða hafa samband í síma 5700 300.