Garri
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á hágæða matvörum, umbúðum og hreinlætislausnum á fyrirtækjamarkaði.
Okkar markmið
Við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu sem felst í fjölbreyttu og nýstárlegu vöruframboði, áreiðanleika og afhendingaröryggi, sem og í fræðslu og faglegri ráðgjöf til viðskiptavina.
Við leggjum okkur fram um að viðskipti séu auðveld og skilvirk, meðal annars með aðgengilegri vefverslun, frumkvæði og jákvæðu viðmóti starfsmanna.
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Garra er að vera fyrsti valkostur viðskiptavina og eftirsóttur vinnustaður sem er þekktur fyrir framúrskarandi þjónustu, nýjungar í vöruframboði, framþróun í tækni, skilvirkan rekstur og samfélagslega ábyrgan rekstur.
Með ástríðu fyrir starfi okkar leggjum við áherslu á ábyrgð, sjálfbærni og stöðugar umbætur til hagsbóta fyrir viðskiptavini, samfélag og umhverfi.
Vinnustaðurinn
Við leggjum metnað í að vera eftirsóttur vinnustaður sem er leiðandi í tækni og leggur áherslu á skilvirkan og sjálfbæran rekstur. Við störfum af ástríðu, frumkvæði og ábyrgð.
Heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru kjarnagildi Garra. Þau endurspeglast í fyrirtækjamenningu okkar og eru leiðarljós í samskiptum, þjónustu og daglegum störfum.
Viltu bætast í hópinn? Skoðaðu laus störf hér
Gildin okkar
Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns sem hafa gildi fyrirtækisins að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Gildin endurspegla grundvallarviðhorf og hugmyndir sem liggja að baki fyrirtækjamenningu Garra.
Hraði • Gæði • Samvinna
- Við stöndum við okkar skuldbindingar gagnvart viðskiptavinum, birgjum og samstarfsfólki
- Við leggjum áherslu á hágæða hráefni og vörur
- Við leggjum áherslu á skjóta og vandaða þjónustu gagnvart viðskiptavinum og samstarfsfólki
- Við klárum fyrirliggjandi verkefni
- Við treystum hvert á annað
- Við erum metnaðarfullt teymi með skýr markmið sem veit að með samtilltu átaki náum við hámarksárangri
Metnaður • Árangur • Minningar
- Við erum fagfólk sem býr yfir dýrmætri þekkingu og reynslu og hefur ástríðu fyrir því að koma til móts við fjölbreytilegar þarfir og óskir viðskiptavina okkar
- Við erum þekkingarfyrirtæki og höfum einsett okkur að vera í fararbroddi varðandi þróun og nýjungum í vörum og þjónustuleiðum
- Hver og einn starfsmaður gegnir mikilvægu hlutverki í sameiginlegum árangri fyrirtækisins
- Við leggjum áherslu á að hafa gaman í vinnunni og skapa góðar minningar
Hreinskilni • Traust • Virðing
- Við komum fram af heiðarleika og virðingu
- Við leggjum áherslu á hreinskiptin samskipti
- Það er alltaf hægt að treysta orðum okkar
- Við erum sanngjörn, lausnamiðuð og hvetjandi
- Við treystum hvert öðru og metum styrkleika hvers annars
- Við þorum að segja erfiðu hlutina
- Ef við sjáum tækifæri til umbóta komum við því áleiðis
- Við viðurkennum mistök okkar og lærum af þeim
