Sjálfbærni hjá Garra

Ástríða Garra fyrir sjálfbærni og frumkvæði til meiri árangurs á þeim vettvangi, má rekja aftur til ársins 2015 þegar hafist var handa við að safna skipulega upplýsingum um úrgang.

Sjálfbærniáherslur Garra

Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga viðskiptahætti sem taka mið af umhverfinu og samfélaginu í heild sinni.

Með ástríðu fyrir starfi okkar og áherslu á stöðugar umbætur, sjálfbærni og eflingu mannauðs leggjum við okkur fram um að tryggja ábyrga starfsemi til heilla fyrir hagaðila, samfélagið og umhverfið.

Sjálfbærnivegferð Garra

Vegferð okkar í sjálfbærni nær aftur til ársins 2015, þegar hafist var handa við að safna skipulega upplýsingum um úrgang og undirbúa flutning í Hádegismóa. Húsnæðið þar var hannað og byggt með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif.

Árið 2022 hófst markviss vinna við mótun heildstæðrar sjálfbærnistefnu og markmið fyrir árið 2023 voru skilgreind.

Starfsfólk Garra tók virkan þátt í greiningu og vali á þeim áhersluþáttum sem lagðir eru til grundvallar sjálfbærnistarfinu: ábyrgri starfsemi, mannauði, aðfangakeðju og viðskiptavinum.

Sjálfbærnitré

Sjálfbærniáherslur Garra í hnotskurn

Við hjá Garra berum virðingu fyrir umhverfinu og samfélaginu öllu og leitumst við að lágmarka skaðleg áhrif af rekstri fyrirtækisins á náttúru og samfélag. Umhverfis- og samfélagsvitund endurspeglast í rekstri fyrirtækisins, stjórnun og daglegum störfum starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að rekstur félagsins sé til fyrirmyndar út frá alþjóðlegum og viðurkenndum viðmiðum um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti (UFS) og ætlum að leggja okkar af mörkum til að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í sjálfbærni.

Helsti styrkur Garra er mannauðurinn og það frábæra starfsfólk sem þjónustar viðskiptavini okkar.

Með því að þróa færni og þekkingu starfsmanna leggjum við grunninn að framtíðarvexti félagsins.

Á árinu 2022 innleiddi Garri jafnlaunavottun og fræðslustjóri var ráðinn til að styðja enn frekar við markmið okkar um eflingu mannauðs og ýta undir metnað og sköpunargáfu allra starfsmanna.

Garri leggur mikið upp úr gæðum í hráefni og framleiðslu birgja og að þeir séu ábyrgir gagnvart samfélaginu og umhverfi.

Við erum ótrúlega stolt af birgjunum okkar og búum við þann frábæra kost að bjóða vörur frá fyrsta flokks framleiðendum bæði innlendum sem erlendum, vörur sem hafa unnið sér fastan sess hjá okkar viðskiptavinum. Því leggjum við ríka áherslu á langtíma samvinnu við alla okkar birgja.

Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu til allra viðskiptavina okkar og byggja ofan á það traust sem okkur hefur verið sýnt.

Við leggjum ríka áherslu á stöðugleika í vöruframboði en erum jafnframt vakandi gagnvart breytingum og nýjungum á markaði. Við leggjum jafnframt ríka áherslu á ábyrga verðlagningu.

Umhverfismál skipta Garra máli og koma við sögu í öllu okkar starfi
Við berum virðingu fyrir umhverfinu og leitumst við að lágmarka skaðleg áhrif rekstursins á náttúruna. Umhverfisvitund endurspeglast í öllum rekstri fyrirtækisins, stjórnun og daglegum störfum starfsfólks.