Þjónusta við viðskiptavini
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á hágæða matvörum, umbúðum, áfengi og hreinlætislausnum á fyrirtækjamarkaði.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu sem felst í fjölbreyttu og nýstárlegu vöruframboði, áreiðanleika og afhendingaröryggi, sem og í fræðslu og faglegri ráðgjöf til viðskiptavina.
Við leggjum okkur fram um að viðskipti séu auðveld og skilvirk, meðal annars með aðgengilegri vefverslun, frumkvæði og jákvæðu viðmóti starfsmanna.
Garri býður viðskiptavinum sínum:
- Reglulegar heimsóknir frá sölufulltrúa
- Útkeyrslu á vörum til viðskiptavina
- Ráðgjöf varðandi val á hráefnum til matargerðar
- Ráðjöf varðandi umbúðarlausnir og einnota vörur
- Ráðgjöf varðandi þrif og hreinlætislausnir
- Uppsetningu standa fyrir pappír og sápur


