Fjáröflun

Fjáröflun er góð leið fyrir íþróttafélög og félagasamtök til að safna fyrir keppnisferðum, æfingaferðum og annarskonar ferðalögum eða viðburðum.

Gott skipulag á fjáröflun gefur tækifæri til að skapa meiri tekjur og einfaldar alla vinnu fyrir umsjónarmenn.

Ferlið

Til að auðvelda ferlið er gott að fylgja þessum skrefum:


  1. Skipa umsjónarmann – Sá aðili sér um samskipti og utanumhald.
  2. Velja vörur til sölu – Mikilvægt er að láta okkur vita áður en salan hefst, svo hægt sé að tryggja að varan sé til í vöruhúsi.
  3. Söluferlið – Hver þátttakandi í hópnum tekur þátt í sölu. Hópurinn hefur ákveðinn tíma til að selja, og að honum loknum skal skila söluupplýsingum til umsjónarmanns.
  4. Pöntun og afhending
      • Umsjónarmaður sendir tölvupóst á
      • fjaroflun@garri.is með fjölda seldra vara
      • Tilgreina þarf nafn og símanúmer pöntunaraðila og hvort varan sé sótt eða send.
      • Ef senda á vöruna skal gefa upp
heimilisfang, nafn og símanúmer viðtakanda.
Fjáröflun

Afhending

Vörur eru afhentar tveimur til þremur dögum eftir að pöntun berst. Nákvæm tímasetning verður staðfest. Mikilvægt er að telja vörurnar áður en afhending fer fram.

Ef eitthvað vantar eða er ekki eins og það á að vera, hafið samband við okkur í gegnum fjaroflun@garri.is eða í síma 570 0300 áður en afhending fer fram.

Við mælum með að aðgreina vörurnar fyrir hvern þátttakanda og afhenda samkvæmt skjali.

Við mælum með að koma í veg fyrir að þátttakendur taki vörur beint úr sendibílnum, þar sem það eykur hættu á ruglingi.

Skipuleggið afhendingu vel og tryggið að enginn afgreiði sig sjálfur.

Sendingar og greiðslur

Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 150.000 kr. eða meira. Við sendum ekki í heimahús.

Vinsamlegast greiðið samkvæmt reikningi, ekki pöntunarblaði.

Bankaupplýsingar Garra:
Reikningur: 0301-26-000816
Kennitala: 670892-2129

Nauðsynlegt er að setja SR númer reiknings í skýringu og senda greiðslukvittun á fjarreida@garri.is.

Ef vörur eru sóttar í vöruhús Garra að Hádegismóum 1 er hægt að óska eftir að greiða á staðnum.

Frekari upplýsingar
Hafið samband við okkur í tölvupósti á fjaroflun@garri.is ef þið hafið einhverjar spurningar.

Gangi ykkur vel :)