15. október 2026

Velkomin í nýja vefverslun Garra!

Frétta header

Ný vefverslun Garra er nú komin í loftið. Markmið okkar með uppfærslunni er að gera viðskipti enn einfaldari, hraðari og þægilegri fyrir viðskiptavini okkar.

Við höfum endurbætt leitarvélina, bætt við öflugri síum, uppfært hraðpöntunarvirkni undir heitinu Mest pantað og gefið vefversluninni nýtt og nútímalegt útlit. Jafnframt höfum við lagt áherslu á betri virkni, aukinn hraða og notendavænni upplifun í gegnum allt kaupferlið.

Við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir ábendingar og samtöl sem hafa hjálpað okkur að þróa nýja vefverslun sem þjónar þörfum þeirra enn betur.

Við munum þó ekki stoppa hér. Við erum með fjölmargar uppfærslur og betrumbætur á verkefnalistanum og munum halda áfram að byggja ofan á þessum góða grunni til að bæta þjónustu okkar enn frekar og þróa vefverslunina í takt við þarfir viðskiptavina okkar.

Við bjóðum þig velkomin(n) í nýju vefverslunina.

Gott að hafa í huga:

Allir notendur þurfa að skrá sig inn (login) aftur

Notað verður sama netfang og lykilorð og áður, en mikilvægt er að netfangið sem skráð er á reikninginn sé rétt svo hægt sé að endurstilla lykilorð ef það gleymist.

Innskráning ný vefsíða
Frétta header (5)

Hraðpöntun mun heita ,,Mest pantað”

Nú verður einnig hægt að fjarlægja vörur af listanum og bæta nýjum vörum við, jafnvel þótt þær hafi ekki verið pantaðar nýlega.

Öll saga og gögn flytjast yfir í nýju vefverslunina

Fyrri pantanir, mínir listar og aðrar persónulegar upplýsingar haldast inni á reikningnum eftir að nýja vefverslunin fer í loftið.

Frétta header (4)