22. janúar 2024
Vegan með Ardo

Vegan falafelvefja
Innihald
- 1 kg Ardo Falafel
- 500 g Tómatar í teningum Ardo
- 500 g Kjúklingabaunir
- 200 g Paprika blönduð í teningum Ardo
- 50 g Shallottulaukur Ardo
- 10 g Chili Ardo
- 10 g Saxaður hvítlaukur Ardo
- 2 dl Grænmetissoð
- kúmen
- 30 vefjur
- 300 g romaine kál
- 300 g klettasalat
Aðferð
- Undirbúið sterka tómatsósu með tómötum, papriku, chili, hvítlauk, shallottlauk og kúmen.
- Bætið kjúklingabaununum við og látið krauma í sósunni í 15 mínútur, kryddið með salti og pipar.
- Þykkið með smá maíssterkju ef þörf er á.
- Setjið Falafel á ofnplötu og bakið í 10-14 mínútur á 180°C.
- Setjið vefju saman með marineruðum kjúklingabaunum, fjórum falafel og romaine káli. Make a wrap with spicy chickpeas, 4 falafels and the roman Lettuce.
- Berið fram með klettasalati og þremur falafel til hliðar.

Thai style grænmetisfranskar
Innihald
- 2 kg Grænmetisfranskar Ardo
• 1 kg Kínablanda Ardo
• 20 gr Kryddblanda Thai style Ardo
• 1,5 dl teriyaki sósa
• 50 ml Sólblómaolía
• Maíssterkja
• Jurtaspírur
• Lime börkur
Aðferð
- Gufusjóðið kínablönduna til þess að afþíða.
- Steikið (stir fry) kínablönduna í sólblómaolíu og kryddið með thai style kryddblöndunni og teriyaki sósu.
- Bindið með maíssterkju.
- Djúpsteikið eða ofnbakið grænmetisfranskarnar.
- Toppið grænmetisfranskarnar með thai teryaki grænmetisblöndunni.
- Berið fram með jurtaspírum og limeberki.

Brómberja & banana smoothie
Innihald
- 150g Frosin brómber Ardo
- 1 Banani
- 1/4 litre Appelsínusafi
- 2 msk sykur
Aðferð
- Blandið saman brómberjum, banana, appelsínusafa og um tveimur matskeiðum af sykri þangað til myndast hefur jöfn og mjúk áferð.
- Hellið í tvö stór eða fjögur lítil glös og berið strax fram.

Smokey bbq Blómkál
Innihald
- 1.5 kg Blómkál 30/60 Ardo
- 125 g Kryddblanda BBQ Style herb Ardo
- 100 g smjörlíki
Aðferð
- Gufusjóðið blómkálið stuttlega og látið renna vel af þeim.
- Blandið smjörlíki við bbq kryddblönduna.
- Raðið blómkálinu í eldfast mót og hellið bbq kryddsmjörinu yfir.
- Bakið blómkálið í ofni í 15-20 mínútur á 180°C.

Asian style Wok
Innihald
- 2 kg Wok mix Ardo
- 150 g Asian style kryddblanda Ardo
- Smá hnetuolía
- 600 g Vegan kjúklingabitar
- 200 ml Sweet chilli sósa
- 100 ml Sæt soyasósa
- 50 ml Sesamolía
- 100 g Hrísgrjónanúðlur
Aðferð
- Djúpsteikið hrísgrjónanúðlurnar stuttlega þangað til þær blása upp.
- Steikið vegan kjúklinginn í hnetuolíu og kryddið með asian style kryddblöndunni.
- Gufusjóðið eða steikið wok mix snöggt og bætið svo við vegan kjúklinginn.
- Bætið sweet chili sósu, soyasósu og sesamolíu við.
- Látið malla, bætið svo steiktu hrísgrjónanúðlunum við og berið fram.
