16. janúar 2024

Grænmetiseldhúsið

greenway allskonar

Takk fyrir komuna á Grænmetiseldhúsið!

_Q9A0548

Fimmtudaginn 11.janúar var haldið námskeiðið Grænmetiseldhúsið í Garra þar sem Paul Florizone eigandi Greenway og Peter De Wandel matreiðslumeistari hjá Ardo kynntu nýjungar og komu með hugmyndir af grænmetisréttum fyrir fagfólk.

Paul Florizone kynntist grænmetismatargerð árið 1996 á ferðalagi um Indland. Greenway opnaði sinn fyrsta veitingastað í Gent árið 1998 og sló strax í gegn. Síðan þá hefur fyrirtækið verið brautryðjandi í grænmetismatvörum sem innblásnar eru af indverskri matargerð.

_Q9A0450

Greenway notar vörur frá Ardo í uppskriftum sínum og því kom Peter De Wandel, matreiðslumeistari hjá Ardo og tók þátt í námskeiðinu. Ardo er stöðugt að koma með nýjungar í vöruframboði og uppskriftum sem stuðla að heilbrigðu líferni.

Ásamt Paul Florizone og Peter De Wandel mættu þær Heidi Goovaerts frá Ardo og Nicole Wille frá Greenway og voru með kynningu á fyrirtækjunum.

_Q9A0528

_Q9A0590

Eftir námskeiðið var hlaðborð þar sem þátttakendur á námskeiðinu fengu að smakka þá rétti sem Paul og Peter höfðu kynnt og undirbúið með hjálp Andrésar og Svavars sölumanna Garra.

Hér má finna uppskriftir á réttunum sem voru á námskeiðinu:

Uppskriftarbæklingur

Réttir-1080x1080_0017__Q9A0559.jpg

Réttir-1080x1080_0028__Q9A0576.jpg

Réttir-1080x1080_0030_Generative Fill 3

Réttir-1080x1080_0048__Q9A0612.jpg

Réttir-1080x1080_0050__Q9A0616.jpg

Réttir-1080x1080_0066__Q9A0636.jpg

Réttir-1080x1080_0059__Q9A0626.jpg