Sigurvegarar fá einstaka upplifun í París
Sigurvegarar í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins hljóta að verðlaunum einstaka ferð til Parísar á vegum Garra, þar sem þau fá tækifæri til að dýpka þekkingu sína á súkkulaði- og konfektgerð undir leiðsögn fremstu sérfræðinga á sviðinu.
Ferðin hefst 1. febrúar með flugi til Parísar. Þann 2. febrúar taka sigurvegararnir þátt í tæknilegu námskeiði í Cacao Barry Chocolate Academy í Meulan þar sem kennarar verða Kent Vendelbo Madsen, matreiðlsumeistari hjá Cacao Barry, og Tor Stubbe, tæknisérfræðingur í súkkulaðigerð.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- Temprun súkkulaðis
- Ganache, fyllingar og mótun
- Sprautunar- og mótunartækni
- Hjúpunartækni
- Þróun og sköpun
Þann 3. febrúar fá þátttakendur svo tækifæri til að kynnast nýjustu straumum og stefnum í súkkulaði- og konditorlist í París. Kent og Tor leiða hópinn um nokkra af fremstu súkkulaði- og konditorverslunum, þar sem skoðaðar verða nýjar hugmyndir, vörur og aðferðir sem móta fagið í dag.
Heimferð er síðan 4. febrúar.
Þessi verðlaunaferð er einstakt tækifæri fyrir framúrskarandi fagfólk til að sækja sér innblástur, efla þekkingu sína og kynnast því besta sem heimur súkkulaðis og konditors hefur upp á að bjóða.



