15. október 2026

Hlökkum til að sjá þig á Stóreldhúsinu

Frétta header

Keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fara fram á Stóreldhússýningunni fimmtudaginn 5. nóvember. Þar gefst gestum einstakt tækifæri til að fylgjast með framúrskarandi fagfólki sýna hæfni sína, sköpunargáfu og ástríðu fyrir faginu.

Keppnirnar eru ávallt hápunktur sýningarinnar og veita innsýn í nýjustu strauma og stefnur í eftirrétta- og konfektgerð. Úrslitin verða tilkynnt klukkan 17:00 sama dag.

Kokkarnir í Garra framreiða úrval spennandi vara úr vöruúrvali fyrirtækisins.

Tækifæri til að smakka nýjungar og fá innblástur og sjá hvernig hægt er að nýta vörurnar á skapandi, bragðgóðan og hagkvæman hátt.

Stóreldhúsið

Mekka Wines & Spirits verða með kynningu á völdum vörum úr sínu spennandi úrvali. Gestir fá tækifæri til að kynnast nýjungum, fræðast um framleiðendurna á bak við vörurnar og ræða þróun og strauma í heimi drykkja með sérfræðingum Mekka.

Kíktu við á básnum, bragðaðu á nýjungum og hittu sérfræðinga frá Garra og Mekka Wines & Spirits í lifandi og skemmtilegu umhverfi.

Hlökkum til að sjá þig.

mekka-logo-15-1000x600