2. september 2026

Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins 2026

Eftirréttur ársins sigurvegari 2025
Konfektmoli Thumbnail

Garri heldur keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýnigunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.

Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry, nánari upplýsingar verða birtar síðar.

Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.

Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.

Þema ársins er París 1920.

eftirr

Skylduhráefni

Súkkulaði frá Cacao Barry:

  • Cacao Barry Mi-Amére 58% – Djúpt dökkt súkkulaði með mildum ristuðum kakótónum og fíngerðum, örlítið súrum jurtakenndum undirtón.

Val er á milli tvegga púrra frá Capfruit:

  • Capfruit Apríkósu Puré – Púrran er framleidd úr Bergeron-apríkósum frá Rhône-dalnum í Frakklandi, afbrigði sem er sérstaklega metið í sætabrauðsgerð fyrir náttúrulegt jafnvægi milli sætu og sýru. Apríkósurnar hafa ríkan ilm, fallegan appelsínugulan lit og hreint ávaxtabragð sem nýtur sín vel í eftirréttum þar sem ferskleiki og áferð skipta máli. EÐA:
  • Capfruit Grænepla Puré - Ávaxtapúrra úr grænum „Granny Smith“ eplum sem býður upp á einstaklega ferskt og svalandi bragð, með léttum sýrðum tónum og fallegum ljósgrænum pastelblæ. Eplin eru ræktuð aðeins nokkra kílómetra frá vinnslustöð Capfruit, í hlíðum Rhône-dalsins í Frakklandi.

Notkun á súkkulaði eða púrrum frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.

Skráning

Skráning fyrir Efirréttur ársins 2026

Skráning fyrir Konfektmoli ársins 2026

Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðsla á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.

Skráningarfrestur er til og með 20. október 2026.

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins

Nánari upplýsingar veitir Silja í síma 858-3023 eða silja@garri.is

Gangi ykkur vel!