20. mars 2026

Garri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun

20250616_141049
BRCGS_CERT_STORAGE_LOGO_CMYK

Við hjá Garra erum afar stolt af því að hafa hlotið BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, sem er hæsta mögulega einkunn í tilkynntu úttektarferli.

Vottunin staðfestir að starfsemi okkar uppfyllir strangar alþjóðlegar kröfur um matvælaöryggi, rekjanleika, hreinlæti og faglega stjórnun í allri meðhöndlun, geymslu og dreifingu vöru.

Vottunin styrkir stöðu Garra sem trausts samstarfsaðila á íslenskum markaði og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að viðhalda framúrskarandi gæðastjórnun í allri starfsemi.

„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur. Viðurkenningin staðfestir að við höfum byggt upp öfluga ferla og vinnum stöðugt að því að tryggja gæði og öryggi í allri starfsemi okkar,“ segir Finnur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Garra.

Við erum þakklát fyrir frábært starfsfólk og samstarfsaðila sem gera okkur kleift að viðhalda hæstu stöðlum í rekstri. Vottunin hvetur okkur til að halda áfram að gera vel og þróa og bæta þjónustu Garra enn frekar. „