Eftirréttur ársins
Garri hefur haldið keppnina Eftirréttur Ársins frá árinu 2010 í samstarfi við Cacao Barry.
Cacao Barry leitast stöðugt við að þjóna matreiðslufólki með því að bjóða hágæða súkkulaði og efla sköpunargáfu matreiðslumanna.
Hverjir geta tekið þátt?
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik frá ofannefndu eru metin sérstaklega.
Skylduhráefni og þema
Hvert ár eru valin skylduhráefni og þema sem keppendur túlka á sinn eigin hátt.
Þemað þarf að endurspeglast í eftirréttinum á einhvern hátt, hvort sem það birtist í hráefnavali, áferð, nafni, framsetningu eða öðrum skapandi þáttum sem gefa honum einstakan svip.
Viltu skrá þig?
Skráning er ekki opin sem stendur.
Fylgstu með hér á www.garri.is eða á samfélagsmiðlum Garra þar sem við tilkynnum um leið og opnað verður fyrir skráningar í næstu keppni.
Sigurvegarar frá upphafi
2025: Andrés Björgvinsson
2024: Hugi Rafn Stefánsson
2023: Wiktor Pálsson
2022: Ísak Aron Jóhannsson
2021: Ólöf Ólafsdóttir
2019: Sindri Guðbrandur Sigurðsson
2018: Snædís Xysa Mae Jónsdóttir
2017: Ásgeir Sandholt
2016: Daníel Cochran Jónsson
2015: Axel Þorsteinsson
2014: Sigurður Laufdal
2013: Hermann Þór Marinósson
2012: Fannar Vernharðsson
2011: Þórður Matthías Þórðarsson
2010: Ingimar Alex Baldursson


