Úrslit eru ráðin í keppninni Eftirréttur Ársins & Konfektmoli Ársins 2018 sem Garri hélt í Perlunni í dag fimmtudaginn 18. október 2018. Í ár var keppnin mjög hörð keppni og mjótt á munum. Augljóst er að gæðin eru mikil hjá keppendum sem eykst með hverju árinu.
Þema keppninnar í ár var HOT STUFF þar sem hver og einn keppandi túlkaði þemað eftir sínu höfði.
Eftirréttur Ársins 2018
Keppendur í Eftirréttur Ársins 2018
Sigurvegarar í Eftirréttur Ársins 2018F.v. Wiktor Pálsson 3. sæti, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir 1. sæti og Chidapha Kruasaeng 2. sæti
Sigurvegari í Eftirréttur Ársins í ár var Snædís Xyza Mae Jónsdóttir frá Hótel Sögu sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis.
Í öðru sæti lenti Chidapha Kruasaeng frá HR Konfekt og í þriðja sæti Wiktor Pálsson frá Hótel Sögu.
Konfektmoli Ársins 2018
Keppendur í Konfektmoli Ársins 2018
Sigurvegarar í Konfektmoli Ársins 2018F.v. Hermann Marinósson 2. sæti, Arnar Jón Ragnarsson 1. sæti og Vigdís Mi Diem Vo 3. sæti
Sigurvegari í Konfektmoli Ársins 2018 var Arnar Jón Ragnarsson frá Sandholt sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis.
Í öðru sæti lenti Hermann Marinósson frá Hótel og Matvælaskólanum og í þriðja sæti Vigdís Mi Diem Vo frá Sandholt.
Dómarar
Dómarar í Eftirréttur Ársins 2018.F.v. Bjarni Viðar Þorsteinsson, Friðgeir Ingi Eiríksson og Bjarni Siguróli Jakobsson
Eftirréttur Ársins:
Yfirdómari var Friðgeir Ingi Eiríksson – Bocuse d’Or keppandi 2007
Bjarni Siguróli Jakobsson – Bocuse d’Or keppandi 2019
Bjarni Viðar Þorsteinsson – Sjávargrillið
Dómarar í Konfektmoli ársins 2018F.v. Sigurður Már Guðjónsson og Júlía Skarphéðinsdóttir
Konfektmoli Ársins:
Yfirdómari var Sigurður Már Guðjónsson frá Bernhöfs Bakarí.
Meðdómari var Júlía Skarphéðinsdóttir matreiðslumaður.
Keppnin fór fram í Perlunni við Út í bláinn og stóð yfir allan daginn frá kl. 10:00 – 16:00. Garri hefur um árabil haldið eftirréttakeppnina við góðan orðstír og hefur hún vakið verðskuldaða athygli í faginu, ásamt keppninni Konfektmoli Ársins sem nú er haldin samhliða.
Sjá fleiri myndir á Instagram og Facebook síðu Garra.
Ný vefverslun Garra fer ótrúlega vel af stað og ríkir mikil ánægja með hana meðal viðskiptavina og starfsfólks.
Við hvetjum alla viðskiptavini að nýta sér hana til hins ýtrasta, fljótlegasta leiðin til að panta vörur og skoða vöruúrvalið okkar.
Hafðu samband við söludeild Garra fyrir nánari upplýsingar eða skráðu þig inn á Vefverslun Garra - www.garri.is
Hér höfum við tekið saman skemmtilegt úrval af vörum sem henta einstaklega vel fyrir morgunverðarhlaðborðið. Mikið af gæðavörum á frábæru verðum.
SJÁ MORGUNVERÐARTILBOÐ
Hægt er að senda inn pöntun á nýrri Vefverslun Garra - www.garri.is
Á þriðjudaginn mun kokteilmeistarinn Gavin Benton frá Funkin Cocktails koma til landsins og sýna spennandi aðferðir, púrrur og sýróp sem slegið hafa í gegn í kokteilsenunni í Bretlandi og víðar um heim.
Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 15. maí á Petersen svítunni og hefjast leikar klukkan 14:00.
Skráning er hafin á:
www.garri.is/námskeið
Hlökkum til að sjá þig!
Starfsfólk Garra og Funkin Cocktails
Nú er úrval af hollu og bragðgóðu morgunkorni frá Morning Foods á tilboðsverði.
Morning Foods er hágæðaframleiðandi sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir vörur sínar.
Tilboðið gildir frá 8. janúar - 19. febrúar 2016. Hafðu samband við söludeild Garra í síma 5700 300 til að fá nánari upplýsingar.
Micro Pro er léttur og vel skipulagður ræstivagn.
Innifaldir hlutir í tilboðinu eru:
4 stk MicromoppurStækkanlegt skaft ásamt festiplötu10 stk MicroklútarPur Active svampurGlerhreinsir BaðherbergishreinsirBlue Star alhreinsir
Vagninn er því tilbúinn til notkunar með öllum nauðsynlegum fylgihlutum.
Fullt verð er kr. 107.422.- með vsk.
Tilboðsverð er kr. 69.824.- með vsk.
Tilboðið gildir til 1. mars eða á meðan birgðir endast.
Hafðu samband við söludeild Garra í síma 5700 300 til að fá nánari upplýsingar.
Námskeiðin fara fram í húsnæði Garra að Lynghálsi 2. 110 Reykjavík.
23. febrúar 13:30 til 17:00, Modern Cuisine.
24. febrúar 13:30 til 17:00, Restaurant Desserts.
Á námskeiðinu er farið yfir aðferðir á notkun efna frá Sosa, notkun efna í forrétti, aðalrétti og eftirrétti ásamt því að sýndar verða ýmsar eldunaraðferðir.
Leiðbeinandi námskeiðsins er Guillem Corral. Guillem hefur haldið fjölda námskeiða fyrir Sosa víðsvegar um heiminn og kynnir bæði faglegar og tæknilegar lausnir í matreiðslu.
Hann er lærður matreiðslumaður og starfaði á virtum Micheline veitingastöðum áður en hann hóf störf hjá Sosa árið 2013.
Ef áhugi er fyrir hendi þá vinsamlegast skráið ykkur með því að senda nafn, símanúmer og vinnustað á netfangið ivar@garri.is.
Heimasíða SOSA
Í framhaldi af vel heppnuðu námskeiði með Guillem Corral frá SOSA verður 25% kynningarafsláttur á öllum SOSA vörum hjá Garra í mars 2016.
Um 60 manns sóttu námskeiðið sem þótti vel heppnað í alla staði. Mikil ánægja var meðal þátttakenda sem kynntust þeim möguleikum sem efnin hafa upp á að bjóða og hve auðveld þau eru í notkun.
Smellið á tenglana til að skoða áhugaverðar uppskriftir.
Hafið samband við söludeild Garra til að fá nánari upplýsingar.