Við fengum Gabríel Kristinn Bjarnason til að setja saman tvær uppskriftir af aðalréttum, pasta ravioli með Achari Tarka sósu og ribey með jarðskokkamauki, laukraguot, bergamot gulrót og demi glaze sósu. (Uppskriftir eru neðar á síðunni)
Gabríel Kristinn Bjarnason útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 2019. Hann starfaði þá á Grillinu á Hótel Sögu en í dag er Gabríel kokkur á veitingastaðnum Dill.
Gabríel hefur verið meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2021 og hann var aðstoðarmaður Sigurðar Laufdal í Bocuse d'Or árin 2019 til 2021.
Pasta:
Setja vatn í pott með salti og olíu og ná upp suðu.
Setja pasta í og sjóða í 3 min, gott er að setja pasta í oliu eftir suðu svo festist ekki saman
Achari Tarka smjör sósa:
200g Achari sósa
50g vatn
200g smjör
1g Natur emul (SOSA)
Aðferð: sjóða upp á vatni og Achari og taka síðan af hita og blanda köldu smjöri saman við með töfrasprota og að lokum Natur emul til að halda bindinguni.
Tómat og perlulauks ragú
100g perlulaukur skorinn í tvent
100g tómatur skorinn í tvent
20g smjör
Timian
Salt
Lemon zest
Aðferð: steikja lauk á sári í pönnu síðan bæta við smjöri og tómötum, krydda til með sítrónu zest og timian blöðum
Aðferð: skamta ribey í 200g steikur, steikja á heitri pönnu í 3 m á hverri hlið, síðan bæta við smjöri og timan og maskera steikina vel. Síðan inní ofn á 190c í 3 min og leyfa að hvíla í allavena 5 min.
Jarðskokka mauk
500g frosnir jarðskokkar frá Ardo
200g Millac rjómi
100g smjör
Salt
Edik
Aðferð. Baka jarðskokka í ofni þangað til mjúkir eða rúmar 40 min á 180c.
Síðan setja jarðskokka í matvinnsluvél og vinna vel saman með rjóma og smjöri þangað til silki mjúkt krem. Smakka til með salt og pipar
Lauk ragut
200g balsamic laukur í dós frá Demetra
50g smjör
Timian
Sítronu timian
Aðfer: taka balsamic lauk í dós og skera niður í 4 helminga, steikja i pott og bæta við smjöri, timian og salt og pipar.
Bergamot gulrót
50g hunang
50g bergamot púrra frá Capfruit
50g olia
Gulrætur að eigin vali
Aðferð: byrja að baka gulrætur á 180c þangað til næstum tilbúnar síðan blanda saman, hunang,bergamot og oliu og velta gulrætum uppúr þvi siðan baka aftur þangað til golden brown.
Demi glaze sósa
1 stk fennel
1 stk blaðlaukur
1 stk laukur
5 stilkar timian
1 lárviðarlauf
10 piparkorn
300 g rauðvín
1 L nautasoð frá Essential Cuisine
100g smjör
1g xantana gum (SOSA)
Aðferð: byrja á að brúna grænmeti og krydd í pott. Síðan bæta við rauðvíni og sjóða það niður um 1/3, bæta við nautasoði og sjóða niður um helming, allt sigtað frá og svo er smjör og zantana bland við með töfrasprota g kryddað með salt og pipar að vild.
Frá því að Garri hóf að mæla kolefnispor félagsins árið 2015 hefur umtalsverður árangur náðst í umhverfismálum.
Garri vinnur markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif félagsins með hagkvæmni í rekstri, endurnýtingu og endurvinnslu.
Gríðarlegur árangur hefur náðst eftir að Garri flutti Hádegismóa í lok árs 2017, en nýtt húsnæði, vélar og tæki í Garra nýta sér orkusparandi lausnir.
Þær lausnir hafa gert Garra kleift að reka mun stærra húsnæði og tækjabúnað á hlutfallslega umhverfisvænni hátt.
Heildarlosun árið 2020 minnkaði um 32 tonn CO2 ígilda eða um 24% frá árinu 2019. Hlutfallslega mest í umfangi 3, sem er óbein losun frá virðiskeðjunni.
Covid hafði talsverð áhrif á veltu og heildarlosun árið 2020 og greinileg merki eru á milli umsvifa í rekstri og heildarlosunar.
Umhverfisskýrsla 2020 hefur verið birt á vef Garra.
Kæru viðskiptavinir
Í tilefni jólahátíðarinnar höfum við sett spennandi kræsingar á tilboð fyrir jólaseðilinn og önnur skemmtileg tilefni í kringum hátíðirnar 🎅
Skoðaðu tilboðið og sendu inn pöntun hér í Vefverslun Garra 👇 www.garri.is/vefverslun/kynningarsíður/jolatilbod-2020
Sendu inn pöntun hér í Vefverslun Garra eða hafðu samband við söludeild fyrir nánari upplýsingar.
Kæru viðskiptavinir
Við óskum ykkur gleðilegrar verslunarmannahelgar og vonum að þið hafið það einstaklega gott um helgina.
Undanfarna daga hafa verið að koma upp einangraðar sýkingar vegna COVID-19. Nú þegar verslunarmannahelgin nálgast er mikilægt að við bregðumst öll við og gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir að faraldurinn fari aftur af stað og að smitum fjölgi enn frekar.
Sérstaklega ber að minna á eftirfarandi:• Handþvott og handsprittun• Virða 2ja metra nándarregluna• Veitinga- og gististaðir fylgja leiðbeiningum um hlaðborð
Gangi ykkur vel og munum að við erum öll almannavarnir.
Við minnum á hreinlætislausnirnar okkar sem hafa reynst vel í gegnum tíðina. Frábær vörumerki og lausnir sem eru hagkvæmar og tímasparandi, og aðstoða þig með afkastameiri og hraðari þrif.
Við höfum tekið saman úrval af vörum sem virka sem vörn gegn COVID-19 í Vefverslun Garra. Einfaldlega skráðu þig inn í vefverslunina og finndu úrvalið sem hreinlætissérfræðingarnir okkar mæla með undir kynningarlistanum Sóttvarnir gegn COVID-19.
Hafðu samband við söludeild Garra ef þig vantar faglega ráðgjöf í hreinlætismálum.