Sumardagurinn fyrsti og 1.maí er framundan
Lokað er í Garra næsta fimmtudag, sumardaginn fyrsta og miðvikudaginn 1.maí.
Framundan eru jafnframt nokkrar fjögurra daga vinnuvikur og því viljum við hvetja alla til þess að panta tímanlega.
Upplýsingar um opnunartíma og dreifingu.
Ferðir á Selfoss og nágrenni verða eftirfarandi:
Þriðjudagurinn 23.apríl og þriðjudagurinn 30.apríl.
Ferðir á Selfoss og Hveragerði eru óbreyttar föstudagana 26.apríl og 3.maí.
Ferðir til Keflavíkur og nágrennis verða eftirfarandi:
Mánudagurinn 22.apríl
Miðvikudagurinn 24. apríl og vikuna eftir á mánudegi og fimmtudegi eins og vanalega.
Við hvetjum viðskiptavini til þess að gera pantanir tímanlega, fyrir skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.
Frá því að Garri hóf að mæla kolefnispor félagsins árið 2015 hefur umtalsverður árangur náðst í umhverfismálum.
Garri vinnur markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif félagsins með hagkvæmni í rekstri, endurnýtingu og endurvinnslu.
Gríðarlegur árangur hefur náðst eftir að Garri flutti Hádegismóa í lok árs 2017, en nýtt húsnæði, vélar og tæki í Garra nýta sér orkusparandi lausnir.
Þær lausnir hafa gert Garra kleift að reka mun stærra húsnæði og tækjabúnað á hlutfallslega umhverfisvænni hátt.
Heildarlosun árið 2020 minnkaði um 32 tonn CO2 ígilda eða um 24% frá árinu 2019. Hlutfallslega mest í umfangi 3, sem er óbein losun frá virðiskeðjunni.
Covid hafði talsverð áhrif á veltu og heildarlosun árið 2020 og greinileg merki eru á milli umsvifa í rekstri og heildarlosunar.
Umhverfisskýrsla 2020 hefur verið birt á vef Garra.
Kæru viðskiptavinir
Í tilefni jólahátíðarinnar höfum við sett spennandi kræsingar á tilboð fyrir jólaseðilinn og önnur skemmtileg tilefni í kringum hátíðirnar 🎅
Skoðaðu tilboðið og sendu inn pöntun hér í Vefverslun Garra 👇 www.garri.is/vefverslun/kynningarsíður/jolatilbod-2020
Sendu inn pöntun hér í Vefverslun Garra eða hafðu samband við söludeild fyrir nánari upplýsingar.
Kæru viðskiptavinir
Við óskum ykkur gleðilegrar verslunarmannahelgar og vonum að þið hafið það einstaklega gott um helgina.
Undanfarna daga hafa verið að koma upp einangraðar sýkingar vegna COVID-19. Nú þegar verslunarmannahelgin nálgast er mikilægt að við bregðumst öll við og gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir að faraldurinn fari aftur af stað og að smitum fjölgi enn frekar.
Sérstaklega ber að minna á eftirfarandi:• Handþvott og handsprittun• Virða 2ja metra nándarregluna• Veitinga- og gististaðir fylgja leiðbeiningum um hlaðborð
Gangi ykkur vel og munum að við erum öll almannavarnir.
Við minnum á hreinlætislausnirnar okkar sem hafa reynst vel í gegnum tíðina. Frábær vörumerki og lausnir sem eru hagkvæmar og tímasparandi, og aðstoða þig með afkastameiri og hraðari þrif.
Við höfum tekið saman úrval af vörum sem virka sem vörn gegn COVID-19 í Vefverslun Garra. Einfaldlega skráðu þig inn í vefverslunina og finndu úrvalið sem hreinlætissérfræðingarnir okkar mæla með undir kynningarlistanum Sóttvarnir gegn COVID-19.
Hafðu samband við söludeild Garra ef þig vantar faglega ráðgjöf í hreinlætismálum.