Nýja súkkulaðið Zéphyr Caramel 35% frá Cacao Barry er nú á kynningartilboði.
Þetta súkkulaði verður í aðalhlutverki í eftirréttakeppni Garra í október 2017.
Vertu með þeim fyrstu til að prófa!
Zéphyr Caramel er hvítt súkkulaði með einstöku karamellubragði og saltkeim.
Taktu forskot og tileinkaðu þér þessa spennandi nýjung!
Nú er sumartilboð á Sidoli kökunum sem gildir út júlí mánuð. Glæsilegt úrval af háhæða kökum sem eru hreint út sagt syndsamlega góðar!
Við kynnum einnig úrval af glútenlausum og mjólkurlausum kökum. Þörf fyrir glútenlausar vörur er sívaxandi og fagnar starfsfólk Garra því að geta boðið upp á þennan valkost.
Sidoli er leiðandi vörumerki í framleiðslu eftirrétta í Evrópu og mikil áhersla er lögð á lúxus vörur þar sem gæðin skipta öllu máli.
Hér getur þú skoðað dásemdirnar sem eru í boði á sumartilboði:
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við söludeild Garra í síma 5700300.
Það gleður okkur að kynna að nú hefur Skúbb ísinn vinsæli bæst við vöruúrvalið okkar.
Ísinn frá Skúbb Ísgerð kemur ískaldur og þéttur í sér og er ávallt nýlagaður og ferskur. Hann er búinn til úr besta hráefni sem völ er á og inniheldur m.a. lífræna mjólk, lífrænan hrásykur og ávaxtapúrrur frá Capfruit sem gefur einstakt náttúrulegt bragð og áferð.
Kynnið ykkur úrvalið hér!
Pantanir og nánari upplýsingar:
garri@garri.is - Sími 5 700 300
Zéphyr Caramel er hvítt súkkulaði með einstöku karamellubragði og saltkeim.
Nú hafa Cacao Barry og Garri útbúið laufléttan spurningaleik þar sem hægt er að vinna 5 kg af Zéphyr Caramel 35%.
Taktu þátt í Karamelluorrustu Cacao Barry og Garra, það er til mikils að vinna fyrir bragðlaukana.
Taktu forskot og tileinkaðu þér þessa spennandi nýjung!
Kæru viðskiptavinir.
Í dag föstudaginn 15. desember munum við flytja starfsemi okkar að fullu í nýtt húsnæði okkar að Hádegismóum 1, 110 Reykjavík.
Símkerfið okkar mun því loka kl 15:00 í dag föstudaginn 15. desember vegna flutningana. Við viljum minna á að klára þarf allar pantanir fyrir þann tíma. Ef eitthvað kemur upp er alltaf hægt að hafa beint samband við ykkar sölumenn.
Kærar þakkir
Starfsfólk Garra
Við óskum viðskiptavinum og samstarfsaðilum okkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Í stað þess að senda út jólakort styrkir Garri gott málefni ár hvert og í ár rennur styrkurinn til Geðhjálpar, samtök um bættan hag fólks með geðraskanir og geðfötlun í samfélaginu.
Við þökkum innilega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til að gera frábæra hluti með ykkur á nýja árinu 2018.
Sjáumst á nýju ári!
Með kveðju,Starfsfólk Garra
Garri í samstarfi við Nordic Spice stendur fyrir spennandi námskeiðum dagana 6. og 7. febrúar 2018.
Námskeiðin fara fram í nýju húsnæði Garra að Hádegismóum 1, 110 Reykjavík.
Um er að ræða tvö ólík námskeið:
6. febrúar 13:30 til 16:30
A la carte eldhúsið, áhersla lögð á kryddun og matreiðslu á hágæða a la carte réttum.
7. febrúar 13:30 til 16:30
Mötuneyti, áhersla lögð á kryddun og matreiðslu á réttum sem henta mötuneytum, stórum sem smáum.
Námskeiðin eru í formi sýnikennslu þar sem útbúnir verða ljúffengir hágæða réttir. Það sem gerir námskeiðið spennandi er kennsla á ýmsum tækniatriðum í meðhöndlun á þurrkuðum kryddum og kryddjurtum í matargerð.
Skráning
Ef áhugi er fyrir hendi þá vinsamlegast skráið ykkur hér á Skráningarsíðu eða með því að senda tölvupóst á arni@garri.is
Lærðu betur á notkun þurrkrydda og kryddjurta í matreiðslu
Leiðbeinandi námskeiðsins er André Wessman matreiðslumaður frá Nordic Spice Svíþjóð. André stýrir þróunarvinnu hjá Nordic Spice og hefur víðtæka reynslu úr veitingageiranum í Svíþjóð. Hann hefur starfað á fjórum Michelinveitingastöðum í Svíþjóð, meðal annars á Operakällaren í Stokkhólmi þar sem hann var yfirkokkur.
Þinn ávinningur af námskeiðinu getur verið:
Rétt meðhöndlun þurrkuðu kryddi og kryddjurtumNýjar uppskriftirMatreiðslumaður frá Nordic Spice á staðnum matreiðir spennandi réttiGarri í samstarfi við Vandemoortele stendur fyrir spennandi brauðnámskeiðum dagana 24. og 25. október 2017
Námskeiðin fara fram í húsnæði Garra að Lynghálsi 2, 110 Reykjavík.
Um er að ræða sama námskeiðið en tvær dagsetningar eru í boði:
24. október 13:30 til 16:30
25. október 13:30 til 16:30
Námskeiðið er í formi sýnikennslu þar sem útbúnir verða ýmsir réttir og nýjar hugmyndir og notkunarmöguleikar kynntir á vörum Vandemoortele.
Skráning
Ef áhugi er fyrir hendi þá vinsamlegast skráið ykkur hér á Skráningarsíðu eða með því að senda tölvupóst á andres@garri.is
Lærðu betur á meðhöndlum og möguleika á vörum frá Vandemoortele
Útbúnir verða ýmsir réttir, nýjar hugmyndir og notkunarmöguleikar á vörum Vandemoortele kynntar t.d. pinnamatur, smjördeigigsbakstur, samlokur og hvernig haga skal bakstri til að hámarka gæði vörunnar.
Þinn ávinningur af námskeiðinu getur verið:
Rétt meðhöndlun á vörum VandemoorteleNýjar uppskriftir og hugmyndir í vöruúrval ykkarHámörkun á notkunarmöguleikum vörunnarKokkur og bakari frá Vandemoortele á staðnum sýnir spennandi tækniatriðiTímasparnaðurLeiðbeinandi námskeiðsins er Johan Carron frá Vandemoortele í Belgíu. Johan hefur unnið með Vandemoortele í þróun og matreiðslu á vörum þeirra.
Ath. Takmarkað sætaframboð – fyrstur kemur fyrstur fær.
Ath. Námskeiðið fer fram á ensku.
Heimasíða Vandemoortele
www.vandemoortele.com
Keppnirnar Eftirréttur Ársins og Konfektmoli Ársins fóru fram á sýningunni Stóreldhúsið 2017 í Laugardalshöll. Garri hefur um árabil haldið eftirréttakeppnina við góðan orðstír og hefur hún vakið verðskuldaða athygli í faginu. Á þessu ári bættist við keppnin Konfektmoli Ársins sem var nú haldin samhliða.
Í ár var keppnin mjög hörð keppni og mjótt á munum, augljóst er að gæðin eru mikil hjá keppendum sem eykst með hverju árinu. Garri hélt nú í fyrsta skiptið keppnina Konfektmoli Ársins samhliða eftirréttakeppninni. Þema ársins var Flóra Íslands.
Sigurvegari í Eftirréttur Ársins í ár var Ásgeir Sandholt frá Brennda Brauðið sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis. Í öðru sæti lenti Garðar Kári Garðarsson frá Deplum og í þriðja sæti Daníel Cochran Jónsson frá Sushi Social.
Sigurvegari í Konfektmoli Ársins 2017 var Chidaphna Kruasaeng frá HR Konfekt sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis. Í öðru sæti lenti Arnar Jón Ragnarsson frá Sandholt og í þriðja sæti Lauren Colatrella frá Mosfellsbakarí.
Dómarar í Eftirréttur Ársins 2017 voru þeir Þráinn Vignir Vigfússon sem jafnframt var yfirdómari, Sigurður Laufdal og Axel Clausen. Dómarar í Konfektmoli Ársins voru Karl Viggó Vigfússon yfirdómari og meðdómari Júlía Skarphéðinsdóttir matreiðslumaður. Það er mikill heiður að fá þessa einstaklinga til starfa en þeir hafa mikla reynslu í matreiðslukeppnum og dómarastörfum.
Eftirréttur Ársins 2017
1.sæti Ásgeir Sandholt - Brennda Brauðið
2.sæti Garðar Kári Garðarsson - Deplar
3. sæti Daníel Cochran Jónsson - Sushi Social
Konfektmoli Ársins 2017
1. sæti Chidapha Kruasaeng - HR Konfekt
2.sæti Arnar Jón Ragnarsson - Sandholt
3.sæti Lauren Colatrella - Mosfellsbakarí
Myndir: Eftirréttir, konfektmolar og keppnin